
Bjössi, eins og við köllum hann, er gæða eðall. Bráðgáfaður fjandi með skemmtilegann húmor. Hann virkar alltaf afslappaður en getur misst sig eftir nokkra bjóra. Fimm er held ég töfratalan. Hann er sá fyrsti í Mosóseríunni sem á eftir að koma hér. Björn er að deita Teddu okkar og finnst mér þau passa vel saman. Björnódóra er sameiginlegt nafn þeirra. Bjössi er líka aðdáandi steikta húmorsins sem fylgir þessum bekk og man ég vel eftir því þegar hann og Sindri plötuðu alla Hellu-búa uppúr skónum. Le Fons. Björn er eins og ísbjörninn, hvítur á yfirborðinu en svarta nefið gefur til kynna að hann sé, og hann er. Björn bara er.
ER!

Brynja er uppáhaldið mitt, mjög falleg manneskja. Hún er fáranlega fyndin og mikil félagsvera. Ég var meira að segja með henni í fyrsta bekk. Hún er s.s. að elta mig. Waaaaaaaaaaaaaaaaaaa... Brynja er mjög fyndin í glasi og má nefna atriðið í sumarbústaðnum sem dæmi. Þar dó hún áfengisdauða í miðri setningu í heitapottinum. Hahahah. Brynja er, eins og margir, á föstu og er það ekki með síðri manni en honum Óskari. Þau eiga vel saman og eiga þau bjarta framtíð fyrir sér. Brynja er grouppía fyrir ekki verri hljómsveitir en Metallica og Iron Maiden. Hvernig annars ætti hún að fá alla þessa miða? Það er allaveganna mjög gaman að Brynju. Brynja er bling.

Binni er án efa besti vinur minn af þeim sem ég hef kynnst hér í MS. Stundum er það skuggalegt hversu líkir við erum. Innst inni erum við tveir alltaf að deyja úr skólaleiða, með þvílíkar skapandi hugmyndir en það eina sem við gerum er að sitja í stúdíóinu mínu og reykja sígarettur.
Ég hef trú á því að Binni gæti orðið mjög góður myndlistamaður, hann hefur metnaðinn. Þó svo að ég og Binni séum líkir, er ekkert líkt með okkur í listinni. Ég hlusta á þyngri kantinn, hann mýkri. Hann reykir Salem, ég Camel. Litlu hlutirnir gera okkur öðruvísi og öðruvísi myndi ég ekki vilja hafa það. Brynjar er vinur í raun og því hef ég kynnst.
Brynjar var hirðfífl í fyrra lífi. Hirðfífl sem hafði gaman að því að borða.
Takk... næstu 3 á morgun!
5 ummæli:
vá einum of skemmtilegt að lesa þetta:) bíð spennt eftir fleiri greinum :) kveðja Tedda
æj þetta er geðveikt gaman :D ég myndi samt segja að sameiginlegt nafn bjössa og teddu sé teddybear! :)
en vei hlakka til að lesa fleiri :)
kær kveðja Lúcía :)
vá,, þetta var... sjitt, kúl.
Halló Halló eru ekki allir í góðum gír, ég kasta kveðju til Berg the wern, B the boobybob og allra hinna! Þið þurfið svo að fara bjóða mér í partý bráðlega þetta gengur alls ekki ha?
Algjör snilld!! þyrfti helst að bæta þessu í tyrnuna hmmm...;)hlakka ekkert smá til að lesa mitt
Skrifa ummæli