miðvikudagur, september 13

20 ár

Í dag var Hilmir Berg Ragnarsson kosinn kynþokkafyllsti maður allra tíma, í öllum alheiminum. Til hamingju. Í öðrum fréttum er það helst að ég var náttúrulega að grínast með kynþokkatitilinn. Í þriðju fréttum er það helst að þótt ég hafi verið að grínast, er ég samt drullu þynþokkafullur, þegar ég vil það. En án alls gríns, haldið áfram að lesa.

Í dag fyrir tuttugu árum gerðist eitthvað eðal, eitthvað yndislegt og jafnvel eitthvað guðlegt. Þá fæddist hún Alice MacKenzie í Huddersfield á Englandi, þeirri miklu stórborg. Hún Alice er frambærileg tenniskona og geggjað gleðilegur frábæringur. Núna er hún 63 kg, soldið feit (tsssss), og var örugglega aðeins léttari þegar hún fæddist. Hún er rétthent og notar tvíhandabakhönd í sínu spili. Alice býr ennþá hjá foreldrum sínum í Huddersfield en sagði í samtali við fréttamann Bergieman að hún quote; "...væri að hugsa um að kaupa sér íbúð nálægt tennisvellinum."
Alice er þekkt sem gæðablóð og hún ætlar ekki að stunda kynlíf fyrr en eftir giftingu. Það þýðir einmitt að þótt hún sé aðeins 20 ára gömul í dag er hún þrígift.

http://www.alicemackenzie.com/bio.shtml

Einnig unnu Cincinnati Reds - Los Angeles Dodgers, 3-0, á Dodger Stadium.

....og já ég fæddist.

Bless.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyrðu félagi...ég er hreint ekki sátt við að þú hafir sagt að hún sé feit þegar hún er 63 kg. ÞÚ ert feitur!

En annars til lukku með afmælið elskan :)