Hæ ég heiti Hilmir. Ég er bara hérna heima. Í tjillinu að skrifa kjörsviðsverkefnið mitt og Brynjars. Útaf því að völdum að gera þetta saman þurfum við að skila 20-30 bls ritgerð, sem er geðveiki því þetta efni sem vil völdum er ekki svo létt.
Verkefnið er um SAMSKYNJUN sem er blöndun skynjunar í skynfærum.
Hér er smá úr fyrsta draginu af ritgerðinni.
Skilgreining á samskynjun
Samskynjun er almennt nafn fyrir skyld fyrirbrigði (a "complex" s.s. flækja) af skilvitlegu ástandi. Samskynjun má án hiks skipta í tvo meginflokka, flokka sem eiginlega skarast á.
Fyrsti flokkurinn er kallaður 'Eiginleg Samskynjun', er eins og er lýst hér að ofan, þar sem áreiti á eitt skynfæri getur haft áhrif á eitt eða fleirri skynfæri.
Seinni tegundin, sem sumir kalla 'Vitræna Samskynjun', inniheldur fylgiskyns viðbætur við menningartengdar vitrænar hugmyndir. Til að einfalda þetta má segja að með þessa tegund samskynjunar eru ákveðnir hlutir sem okkar menning hefur kennt okkur að tengja saman eða flokka á sérstaka vegu, eins og bókstafi, númer og nöfn, mun meira en bara bókstafir, númer eða nöfn. Heldur fær maður aukaskyn, eins og lykt, lit eða bragð. Algengustu form vitrænnar samskynjunar tengjast oftast lituðum bókstöfum (graphemes), númerum, tíma einingum eða tónum (eða hljómum).
Samskynjun er einskonar viðbót: þ.e., það bætir við upprunalegu tilfinninguna (skynjunina), frekar en að en að koma algerlega í staðin fyrir einhvern skynjunarmáta. Sá sem hefur eiginleikann til að sjá liti úr tónlist, sér litina en þeir hafa engin áhrif á tónlistarupplifunina. Tónlistin skilar sér alltaf eins og hún ætti. Báðar skyntúlkanirnar, litirnir og tónlistin, geta haft áhrif á aðrar og breytt því hvernig þær virka og stigbreytast með öðrum skynfærum. Samskynjun er samt almennt séð einhliða.
mánudagur, nóvember 28
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Flott byrjun hjá ykkur, hljómar ellavega betur en mín ritgerð ;P
En já flott síða hjá þér, og léleg mynd sem þið sáuð um daginn, ég hló upphátt við að lesa um söguþráðinn! Hversu asnaleg getur ein mynd verið?
Ég er nú bara sáttur við að geta skrifað svona, og skilið það.
Sammála þér Þorkell!
en Hilmir þú stendur þig vel!
Skrifa ummæli