Vangi. Hvað er vangi. Ég sé fyrir mér vanga, þú veist hvað það er. En málið er bara þetta orð, VANGAVELTUR. Er maður að velta vöngum þegar maður vangaveltir og skrifar niður vangaveltur? Ef ég skrifa um þessar vangaveltur, náttúrlega veltandi vöngum á meðan, er ég þá með vangaveltandi vangaveltur? Það er hægt að velta vöngum yfir því....
Ég skemmti mér kongunglega í kvöld. Fór á leikritið um Sölku Völku sem er gaman því kötturinn minn heitir Salka Valka. Um leið og ljósin dofnuðu leið mér eins og eitthvað vantaði og það var hún Salka mín. Ég elska hana... mússí!
Allaveganna stóð góður leikur upp í þessu leikverki. Ég skildi mest allt, en samt ekki allt. Váá...
Ég á að vera farinn að sofa. Góða nótt kæru lesendur, ég held að 2 viti um þennan blogg.
Eftir 10 daga verð ég frægur!
And on that bombshell, kveð ég að sinni...
Bergieman, da bomb!
föstudagur, nóvember 18
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er satt hjá þér, vangaveltur eru skrýtið orð. Samkvæmt íslenskri orðabók er vangavelta það að halla höfðinu til hliðanna á víxl; efasemdir; heilabrot. Að vera með vangaveltur: velta e-u fyrir sér, ígrunda e-ð. Fannst annars Salka Valka góð, og ég er viss um að leikritið hefði verið enn betra ef köttur hefði læðst af og til um sviðið, ekki verra ef sami köttur héti Salka. Langaði svo bara að kvitta fyrir komuna!
Skrifa ummæli