
Ég var að skoða blað sem Dabbi var að krota á í bílskúrnum og tók eftir því að hann skrifaði Hilmir, og síðan beint fyrir neðan skrifaði hann Himler. Wierd.
Ég hef aldrei tekið eftir þessari einföldu breytingu á nafninu mínu, þessi gaur var vondur. Hilmir Himler. Hvernig væri það?
Hann er líka dáldið líkur mér!
En án alls gríns er þessi gaur fokking killer. Hann drap fólk og slátraði gyðingum og stjórnaði mörgum af hættulegustu sveitum Nasista. Þess vegna vil ég ekki láta bendla mig við þennan mann. Sá eða sú sem lætur sér detta það í hug að að kalla mig Himler fær högg.
Sniðugt.
Ég nenni ekki að taka fyrir fleirri úr bekknum fyrr en kannski eftir helgi. Ég verð að einbeita mér að hljómsveitadótinu. Söngvakeppnin er í næstu viku og lögin eru að smella saman. Ég hvet ykkur öll til að mæta.
Ef ykkur langar að heyra fleirri lög með Jezebel skal ég verða við þeirri ósk. Ég set eitt lag í viðbót.
Jezebel - Veins
Textinn:
Í þessum æðum er kalt fljót milli tveggja heima.
Líkami og sál. Ég er í stríði við mína eigin sannfæringu.
(Frosti rapp)
Svartar krákur, merkja staðinn. Heilan verkjar, hjartað öskrar.
Andardrátturinn eini sem framlengir hugsun.
Hvar það byrjar, hvar það endar.
(kórus)
Allt er það fallegt.
Lífið er gefið og aldrei tekið.
Á degi eins og í dag telur timinn syndir.
Verður okkur fyrirgefið.
(frosti)
How long will this last
Do they have to fix the world
While their
Home of the free is falling to pieces.
Let me assure you time will tell
This monopoly of the world
will not last long
There will be no Hollywood
there will be no...
Skýing mynda boga um þitt hjartalaga form
og jörðin neitar þér lendingu, lendingu.
Dökk, þung þoka læðist yfir gráan sand, ég er einn hér.
(Frosti rappar)
(kórus aftur)
Lag: Hilmir
Texti: Jezebel
___
Fokk já hvað við eum góðir.
Heyri í ykkur um helgina.
Love you.
3 ummæli:
Klassa síða hjá þér Hilmir. Maður kíkir stundum á þetta hjá þér, en er minna í að commenta. Ég ákvað þessvegna að láta í mér heyra svona einusinni. Ég er reyndar mest fyrir gömlu póstana þína. Þeir voru uppfullir af upplífgandi pælingum sem fá mann til að hugsa. Myndi endilega vilja sjá meira af slíku.
Mér þótti sérstaklega skemmtilegir póstarnir vangaveltur, banana og í algeru uppáhaldi er greinin um hugsanlega samkynhneygða figrolls góðgætið. Þvílíkur sigur.
jesebel, eru þið kannski frekar óðir en góðir?
Smekklegt lag en mér fannst samt fruit´n´fibre flottara
Skrifa ummæli