föstudagur, febrúar 24

Akranes

Ég sit hér og drekk piparmyntu te eftir langan dag. Vinna klukkan 7:30 á morgun og veðurguðirnir baða okkur í næstum því stuttermabola-veðri. Ég leyfi heilanum að fá nokkrar til að raða upp því sem fyrir hann kom í dag. Í sannleika sagt var það ekki mikið, en ég er þó ánægður með daginn. Ég vaknaði alveg um hádegið, ég ætlaði að fara í skólann en prófið var ekki.... svo ég skrapp lítið í sundin. Eftir að ég hafði eyðilagt nokkra striga með einhverju sem átti að verða list, hringdi ég í Stebba. Hann bauð mér í kaffi og kleinur og ég bara skellti mér í bryggjuna, einn og óvaldaður.
Þegar í bryggjuna var komið voru kleinurnar búnar og Stebbi stóð með kaffikönnuna úta miðju gólfi og var að hella kaffinu yfir sig. Ég spurði engra spurninga en efaðist um geðheilsu hans. Ég sagði að hann yrði að fara út, "Þessi eingangrun gengur ekki drengur. Nú förum við á heimaslóðir. Akranes."
Ég og hann Stebbi vinur minn erum nefnilega báðir aldir upp í Akranesi, upp að vissu marki þó. Ég var ný orðinn 5 ára þegar ég flutti hingað í Sigtúnið, en ég held að Stebbi hafi andlega aldrei skilið við sveitalyktina. Þegar maður keyrir inní svona afskekktan stað eins og Akranes verður maður að vera tilbúinn með cover-story. Ég hét Hill Bille Hick og Stebbi kallaði sig Peter Andre. Við vorum í Akranesi útaf buisness-fundi við forstjóra fiskibræðslunar. Allt gert til að passa það að fólk fatti ekki að værum þarna til að benda og hlægja.
Við eyddum svona klukkutíma í Akranesi og fórum síðan heim, endurnærðir og stoltir af litla bænum okkar, sem gaf okkur svo mikið. Takk.

Hér eru nokkrar myndir plús myndir af Oddi Boxer og Þobba.

HÉR ERU MYNDIRNAR

Skemmtið ykkur...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta á alls ekki að hljóma illa, alls ekki en þetta blogg er mjög í sama dúr og hvernig bloggfærslurnar voru hjá mér fyrir akkurat 2 árum, þ.e.a.s. blog central tímabilið mitt

Bergieman sagði...

Þú ert samt ekki svona fokking góður ljósmyndari... og það eina sem þú skrifaðir um var Top 10 listar yfir eitthvað sem tengdist tónlist og hvað þú keyptir í gær...

Þetta á alls ekki að hljóma illa...

Nafnlaus sagði...

halló halló hvað er að frétta hér? sko ég farin að móðgast, akkurat þegar þú átt að fara að skrifa um mig er bara hætt við allt....þetta nístir mig í hjartað! vona að þú skiljir þetta...með fyrirfram þökk Tedda ;)