mánudagur, október 9

Sælinú

Hér er ég. 20 ára gamall og ég kann ekki að tala.

Ég var í sumarbústað um helgina og skemmti mér ágætlega. Í þessari fyllerísferð komst ég á sönnur um nokkra hluti.

  1. Hnakkar eru fífl, voru fífl og verða alltaf fífl.
  2. Ég á ekki að drekka mikið af hveitibjór, dökkum bjór eða bara einhverskonar bjór!
  3. Ég elska keflavík og kvenmennina þeirra.
Ég svaf svo mikið Laugardagsnóttina að ég verð líklega vakandi í alla nótt. Kannski næ ég að klára nýja smásögu sem ég hef verið að vinna í.



Þetta ljóð er um samband milli konu og karls á vinnustað, helst byggingarvinnustað.

Naglar


Það er eins og nagla hafi verið neglt
í gagnauga á höfði mínu
Vertu svo væn að fjarlægja naglann
Kannski ertu bara eins og ég
með nagla í hausnum biðjandi mig
"...fjarlægðu naglann, beibí."

Takk

Engin ummæli: